Description
Innbyggð samskiptatækni
Innbyggðir hátalararnir eru staðsettir yfir eyrunum sem gerir að verkum að hjólarinn heyrir einnig umhverfishljóð þrátt fyrir að vera að hlusta á tónlist eða tala við aðra. Míkrófónninn er staðsettur framan á hjálminum og er búinn öflugri tækni sem útilokar umhverfishljóð svo vindur og annað í umhverfinu berst ekki inn í samskiptin.
- Noise Cancellation: Advanced Noise Control™
- Codec: Built-in SBC Codec
Samskipti við aðra hjólara gegnum innbyggt kallkerfi
Hjálmurinn inniheldur kallkerfistækni sem gerir þeim sem hjóla í hópi kleift að tala saman milli hjálma án þess að þurfa að taka upp síma. Hægt er að tala saman í allt að 900 mtr. fjarlægð.
- Engin þörf fyrir símasamband né gagnanotkun þegar talað er milli hjálma
- Drægni: Allt að 900 metrar á opnu svæði
- Allt að 4 aðilar geta verið saman í spjalli meðan hjólað er
Bluetooth pörun við síma
Hægt er að para símann við hjálminn og nýta þannig GPS leiðsögn, svara símtölum eða hlusta á tónlist eða annað afþreyingarefni á meðan hjólað er.
- Bluetooth 4.1
- Headset Profile (HSP)
- Hands-Free Profile (HFP)
- Advanced Audio Distribution Profile (A2DP)
- Audio Video Remote Control Profile (AVRCP)
Öruggur og þægilegur hjálmur
Hjálmurinn er höggþolinn, skelin er úr polycarbonate með polystyrene varnargrind og EPS einangrun, stillanlegur með snúningslæsingu. Hjálmurinn er með hökubandi úr mjúku, næloni og bólstrun inni í hjálminum er hægt að fjarlægja og þvo.
- Fjöldi loftopa sem veita hámarksöndun og eru sérhönnuð með tilliti til hraða
- Innbyggt, stillanlegt LED afturljós eykur sýnileika
- Skyggni framan á hjálminum ver notanda gegn sólargeislum, hægt er að fjarlægja skyggni
Sérsniðnar stillingar gegnum app
Sena Utility appið gerir þét kleift að sérsniða stillingar að þínum þörfum, velja þá aðila sem þú vilt ná sambandi við í kallkerfinu ásamt ítarlegum leiðbeiningum um notkun.