TEMP Flaska 0.5 L – Wisdom Water

6,990kr. með VSK

Efni: Ryðfrítt stál & PP-plast
Mynstur: Water
Mál: 74 x 240 mm
Stæðr: 0.5 L
Þyngd: 280 g

Hönnun: Carl Oscar® & Magdalena Lundkvist

Description

TEMP Flaska með 100% lekavörn og „VacuumShield™“ tvöfaldri loftþéttri einangrun. Heldur drykknum köldum í allt að 24 klst eða heitum í allt að 10 klst. svo hægt er að njóta þess að vera með kaldan eða heitan drykk hvar sem er, hvenær sem er. Einstaklega sterk flaska sem framleidd er til daglegra nota og má nota fyrir hvaða vökva sem er. Flöskunni fylgja tvennskonar tappar, einn með ryðfrýu stáli að innan sem tryggir enn betri einangrun og einnig að drykkurinn kemst aldrei í snertingu við plast. Hinn tappinn er fyrir kalda drykki og er með stút sem auðveldar að drekka úr flöskunni án þess að skrúfa tappann af. Breiður stútur með mjúkum brúnum sem þægilegt er að drekka úr og einnig auðvelt að þrífa. Flaskan rúmar 0,5 L og er framleidd úr hágæða 18/8 ryðfríu stáli og allir hlutar BPA-, þalat- og blýfríir. Fæst í 5 fallegum litum með myndskreytingu.

Myndskreytingin er einstök, hún er byggð á fornum norrænum rúnum og lýsir merkingu þeirra og einnig Svíþjóð og sögu þess frá persónulegu sjónarhorni. Orðið „rún“ þýðir „viska“ eða „leyndarmál“. Mynstrin eru hönnuð í nánu samstarfi Anniku & Niclas hjá Carl Oscar við grafíska hönnuðinn Magdalenu Lundkvist.

Nánari upplýsingar um mynstrið er að finna hér

Hver mynd hefur innbyggða rún en talið var að þær væru gjöf frá norska guðinum Óðni. Rúna áletranir eru elstu frumskjölin á sænsku og voru búin til einhvern tíma um 100 e.Kr., líklega með latneska stafrófið sem fyrirmynd.

Nánari upplýsingar um rúnirnar er að finna hér