Description
Opinberlega viðurkennd 1:3 stytta af Liverpool varnarmanninum Virgil Van Dijk
Sérpöntun – takmarkað upplag – aðeins 450 stk framleidd!
Football’s Finest kynna hágæða styttu af Virgil Van Dijk, þetta er einstök vara fyrir safnara sem kemur í takmörkuðu, númeruðu upplagi.
Styttan ber klassíska rauða heimabúning Liverpool, klæðist bláum takkaskóm og stendur á grænni grasflöt sem líkir eftir grasflöt Anfield.
Hönnun styttunnar líkir eftir þekktu fagni Van Dijk þar sem hann kreppir hnefana og öskrar á aðdáendur og er hönnuð til að líkja eftir öllum smáatriðum leikmannsins, hágæða stytta fyrir sanna aðdáendur Liverpool og Virgil Van Dijk.